Vefir sem skila árangri

Hæ! Ég heiti Davíð, Vefhönnuður
Vantar þig nýjan vef eða viltu betrumbæta þann gamla? Ég hanna skýra og áhrifaríka vefi fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Með áherslu á einfaldleika, góða notendaupplifun og lausnir sem styðja við þín markmið.
Nýleg verkefni
Gulur september
Hönnun og þróun á vef fyrir Gulan september, verkefni sem vinnur að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Skoða verkefni ››Vantar þig aðstoð?
Ég hanna og byggi vefi, veiti ráðgjöf og vinn náið með þér í að finna réttu lausnina fyrir þitt verkefni. Með áherslu á skýrar og gagnlegar vefsíður sem skila raunverulegum árangri.
Fréttir og fróðleikur
Hvernig set ég upp netverslun í WordPress 2026
WordPress knýr um 43% allra vefsíða á internetinu. Stór hluti þeirra eru netverslanir sem keyra á WooCommerce — ókeypis viðbót sem er sérstaklega byggð fyrir WordPress.
Hvað gerir vefsíðu góða? 6 lykilatriði í vefhönnun
Vefhönnun snýst ekki aðeins um að búa til fallega síðu. Góður vefur þarf að vera skýr, aðgengilegur, hraður og auðveldur í notkun.
Hvaða möguleikar eru í boði til að setja upp vefsíðu í dag?
Það hefur aldrei verið jafn einfalt að setja upp vefsíðu eða netverslun eins og í dag. Hinsvegar eru svo margir valmöguleikar að það getur verið erfitt að velja á milli.
Meðmæli
Ég er þakklátur fyrir að fá að vinna með frábæru fólki
Ég mæli heilshugar með Davíð þegar kemur að vefsíðugerð. Hann er skipulagður, vandvirkur, þolinmóður og skilaði fallegri heimasíðu. Síðan virkar vel og uppfyllir öll okkar markmið. Davíð er fljótur að bregðast við, samskipti eru þægileg og verkefnið kláraðist á umsömdum tíma.
Það er mjög gott að vinna með Davíð og ég mæli innilega með honum. Hann er sterkur í mannlegum samskiptum, þolinmóður og góður að miðla þekkingu sinni. Við erum í skýjunum með útkomuna og höfum fengið jákvæð viðbrögð, ekki síst fyrir hversu aðgengileg, skipulögð og falleg heimasíðan er.
Davíð hannaði fyrir okkur vefsíðu í WordPress sem er bæði stílhrein og notendavæn. Hann hlustaði á allar okkar óskir og breytti hugmyndum okkar í raunveruleika. Vefsíðan er hraðvirk, einföld í viðhaldi og lítur vel út á öllum tækjum. Við erum ánægð með útkomuna og þjónustuna í heild. Mæli hiklaust með!
Gerum hugmynd þína að veruleika
Hafa sambandFAQ
Svör við algengum spurningum
Verðið fer eftir umfangi og flækjustigi verkefnis. Þú getur haft samband og fengið að kostnaðarlausu tilboð í þitt verk.
Það fer alveg eftir umfangi verkefnis, en einfaldar síður taka að minnsta kosti 3 vikur.
Ég set upp allar gerðir heimasíða. Aðallega síður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, einstaklinga og stofnanir.
Já, ég get sett upp netverslanir með greiðslugátt og flóknari vefi. Bókunarkerfi, leigu á vörum o.s.frv.
Já, allar vefsíður eru byggðar með grunn SEO í huga til að tryggja að leitarvélarnar finni síðuna þína. Ég get einnig ráðlagt frekari SEO aðgerðum til að auka sýnileika.
Hafðu samband
Endilega vertu í bandi! Ég tek vel á móti öllum fyrirspurnum.

